Tónlistin tók völdin í Sjónarhóli
Tónlistin hefur ráðið ríkjum í leikskólanum Sjónarhóli í þessari viku, en árleg tónlistarvika hefur verið í skólanum. Að þessu sinni komu börn úr tónlistarskóla Árbæjar og Grafarvogs í heimsókn og léku fyrir börnin sem fóru líka í heimsókn til hljómsveitarinnar og kynntu sér starfið.
Foreldrar og systkini tveggja barna komu líka og piluðu á flautu, harmónikku, básúnu og hljómborð. Þá kynntu starfsmenn tónlist og dans frá Mexíkó og Marokkó, starfsmannakórinn söng fyrir börnin og þeir starfsmenn sem leika á hljóðfæri létu ljós sitt skína. Sameiginlegar söngstundir voru tvisvar á dag
Reynir tónlistarkennari úr Mosfellsbæ kom einnig í heimsókn og kynnti skrýtin og skemmtileg hljóðfæri og spilaði undir barnasöng á harmónikku, marimbu og gítar. Óhætt er að segja að allt húsið hafi ómað af tónlist í vikunni og glatt börn og gesti í Sjónarhóli.