Ráðstefnan Lýðræði á 21. öld er á morgun
Melissa Mark-Viverito hefur verið borgarfulltrúi í New York borg frá 2006 og situr í borgarráði fyrir demókrata. Hún er fyrsta konan af rómönskum uppruna sem er kosin sem fulltrúi 8. svæðis borgarráðs, sem nær m.a. yfir Harlem. Melissa er ein þeirra borgarfulltrúa sem átti frumkvæði að innleiðingu þátttökufjárhagsáætlunargerðar í New York. Hún hefur alla tíð verið virk í samfélagsmálum og stofnaði t.d. samtökin Konurnar í El Barrio, sem styður og hvetur konur til að vera leiðandi á öllum sviðum samfélagsins. Meðal annarra áherslumála hjá henni má nefna baráttu fyrir aðgengi að félagslegu húsnæði. Hún er menntuð í stjórnmálafræði og opinberri stjórnun.
Donata Secondo heldur utan um innleiðingu þátttökufjárhagsáætlunargerðar í New York. Hún er menntuð í þróunarfræðum og Suður-Ameríku fræðum frá Brown háskóla. Hún hefur unnið fyrir ýmsar rannsóknarstofnanir, þar á meðal Watson Institute, CENDA og CEDEM. Secondo hefur stundað rannsóknir á sviði kvennafræða og alþjóðafræða. Undanfarin ár hefur Donata stundað rannsóknir á útbreiðslu þátttökufjárhagsáætlunargerðar og áhrifum slíkra ferla á félagslegt réttlæti í viðkomandi samfélögum.
Birgir Björn Sigurjónsson, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar, hefur kynnt sér verkefnið í New York og segir það mjög áhugavert. Hann segir að farið hafi verið í verkefnið til að leiðrétta ákveðinn lýðræðishalla þar sem þátttaka í kosningum í Bandaríkjunum hafi farið minnkandi og því hafi verið talið nauðsynlegt að færa valdið nær fólkinu. Í New York séu 52 borgarhlutar og hver hafi sinn borgarráðsmann. Hver og einn fái úthlutað fjármagni til að bæta sína borgarhluta sem þeir ráði í raun yfir. Fjórir borgarráðsmenn, sem komi m.a. frá tveimur fátækustu hverfunum þar sem kosningaþátttaka er minnst, hafi síðan ákveðið að leyfa íbúum að koma að ákvarðanatöku varðandi hvað þetta fjármagn fari í.
„Þeir byrjuðu á því að virkja grasrótarsamtök sem berjast fyrir auknu lýðræði og kölluðu þau til samráðs og ráðgjafar um hvernig þetta ferli ætti að vera. Í raun er þetta um margt svipuð framkvæmd og var hjá okkur í íbúakosningum nema hvað við nýttum okkur rafrænar lausnir í kosningunum. Það voru haldnir íbúafundir og ferlið var frekar langt og strangt en samt var þátttakan frekar lítil. Á það ber að líta að þeirra kosningar voru m.a. í Harlem og Bronx þar sem er mikið um innflytjendur, fátækt og félagsleg vandamál. Þarna var kosið um hluti sem eru áþekkir og hjá okkur, leikvelli, körfuboltagerð og tölvuvæðingu í skólum en einnig hluti sem við þekkjum síður eins og ýmsar framkvæmdir sem lúta að öryggi íbúanna, t.d. öryggismyndavélar, flóðlýsingu á skólalóðum og þar fram eftir götunum.“
Birgir Björn segir fyrirlesarana frá New York mjög skeleggar baráttukonur fyrir íbúalýðræði og því ætti fyrirlestur þeirra að vera mjög áhugaverður.