Fjölmennt Fjölmenningarþing

Fjölmenningarþing Reykjavíkurborgar var haldið í Borgarleikhúsinu í annað sinn í dag og voru þátttakendur á annað hundrað talsins. Jón Gnarr, borgarstjóri, setti þingið og sagði það mikilvægan vettvang fyrir innflytjendur og borgina til skoðanaskipta. Framlag innflytjenda til lífsins í borginni væri mikilvægt og því nauðsynlegt að leita til þeirra sem þekkja málefnið af eigin raun. Einnig afli borgin sér upplýsinga um hvernig styrkja megi þjónustu við þennan hóp borgarbúa.

Að lokinni setningu voru pallborðsumræður þar sem þátttakendur voru einstaklingar af erlendum uppruna sem ræddu um reynslu sína af því að setjast að hér á landi. Því næst tóku við hringborðsumræður á 8 tungumálum þar sem þátttakendur lýstu skoðunum sínum á ýmsum hliðum er varða aðgengi innflytjenda að upplýsingum og þjónustu. Niðurstöður þingsins verða kynntar í byrjun næsta árs.
 
Kosningar í fjölmenningarráð fóru einnig fram á þinginu, 7 fulltrúar skipa ráðið og gefa 15 frambjóðendur gefa kosta á sér til setu. Úrslit kosninganna verða tilkynnt mánudaginn 12. nóvember.