Ný gangbrautarljós við Grund
Nú í vikunni verða gangbrautarljós á Hringbraut hjá elliheimilinu Grund endurnýjuð. Vegna þessarar vinnu verður að slökkva tímabundið á ljósunum kl. 9:30 mánudaginn 12. nóvember og verða ljósin óvirk í 3-4 daga. Umferðarhraði verður takmarkaður við 30 km og eru vegfarendur minntir á að virða þau mörk.
Allur ljósa- og stjórnbúnaður verður endurnýjaður en sá gamli er kominn til ára sinna. Nýi búnaðurinn eykur öryggi gangandi vegfarenda. Eins og á öllum gangbrautarljósum þarf að ýta á hnapp til að panta ljósin. Það sem einkennir þessa gerð ljósa er að „græni kallinn“ birtist á skjá fyrir ofan hnappinn í stað þess að vera á staurnum handan götunnar. Skynjarabúnaður á gangbraut tryggir að rautt ljós logar lengur móti akandi umferð ef þörf krefur, en þó aðeins upp að vissum tímamörkum sem þó eru rúm. Með þessu fyrirkomulagi er ljósastýringin annars vegar aðlöguð þeim sem þurfa lengri tíma til að komast yfir götuna og hins vegar akandi umferð sem þá er aðeins stöðvuð þann tíma sem nauðsynlegt er hverju sinni.
Auk endurnýjunar búnaður verður stöðvunarlína bílaumferðar færð fjær gangbrautinni.