Á þriðja hundrað manns hafa skráð sig á málþing um skólaskil

Í tilefni af útkomu bókarinnar Skil skólastiga – Frá leikskóla til grunnskóla og grunnskóla til framhaldsskóla eftir Gerði G. Óskarsdóttur verður efnt til málþings í Norðlingaskóla þriðjudaginn 13. nóvember kl. 14.00. Þar mun Gerður greina frá umfangsmikilli rannsókn sinni á tvennum skólaskilum og sýna fram á hvað betur má fara. Hátt í þrjú hundrað manns hafa skráð sig á málþingið.

Með rannsókn sinni, sem er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi, hefur Gerður G. Óskarsdóttir sýnt fram á að rof verður í ákveðnum þáttum í námi á milli skólastiga og því sé breytinga og jafnvel mikilla umbóta þörf til að tryggja betri samfellu í náminu. Rof og það sem Gerður nefnir afturhverft rof kom fram í því að nemendur voru í sumum tilfellum að fást við sama efni og áður á nýju skólastigi, s.s. kynningu á bókstöfum og endurtekningu í námsgreinum. Þá virtist draga úr áhrifum nemenda á framgang námsins og viðfangsefni þegar þeir komu á nýtt skólastig. Gerður setur fram tillögur um breytingar, bæði á umgjörð skólastarfs, s.s. skólaskyldu og lengd heildarnáms, og á daglegu starfi innan skólastofunnar, og þá einkum hvað varðar virkni nemenda og sjálfræði. 

Gerður G. Óskarsdóttir hefur starfað sem kennari á grunnskóla-, framhaldsskóla- og háskólastigi, verið skólastjóri, skólameistari, kennslustjóri í kennaranámi framhaldsskólakennara við Háskóla Íslands, ráðunautur menntamálaráðherra, fræðslustjóri og yfirmaður leik- og grunnskóla hjá Reykjavíkurborg. Hún er nú forstöðumaður Rannsóknastofu um þróun skólastarfs á Menntavísindasviði HÍ. Gerður lauk doktorsprófi í menntunarfræði frá Kaliforníuháskóla í Berkeley árið 1994 og hefur um árabil stundað fræðistörf og rannsóknir.