Úrslit kosninga í fjölmenningarráð Reykjavíkurborgar

Úrslit kosninga í fjölmenningarráð Reykjavíkurborgar

Úrslit kosninga í fjölmenningarráð Reykjavíkurborgar voru tilkynnt í dag. Kosning fór fram dagana 8. til 10. nóvember.  15 einstaklingar buðu sig fram til setu í ráðinu. Ráðið er skipað sjö fulltrúum og er kosið til tveggja ára eða til ársins 2014.  Þeir sem kosnir voru til setu í ráðinu að þessu sinni eru:

Candace Alison Loque (Filippseyjar),  Aleksandra Chlipala (Pólland),  Jessica Abby VanderVee (Bandaríkin), Harald Schaller (Þýskaland), Tung Phuong Vu (Víetnam), Juan Camilo Roman Estrada (Kolumbía), Josephine Wanjiru (Kenýa).

Varamenn eru:

Ronald Surban Fatalla (Filippseyjar), Natalia Boyko (Rússland), Godson U.O. Anuforo (Nígería), Amir Mulamuhic (Bosnía), Luiza Klaudia Potuczek (Pólland), Agnieszka Sienkiewicz ( Pólland), Rey LeClerc Sveinsson ( Puerto Rico).

Fulltrúar í fjölmenningaráði voru almennt ánægðir með hvernig til tókst með Fjölmenningarþingið sem haldið var síðastliðinn laugardag þann 10. nóvember og hversu vel það var sótt af innflytjendum.  Mikilvægt væri að nýta þann lærdóm sem fékkst af þinginu en aðalumræðuefnið þingsins að þessu sinni var aðgengi innflytjenda að upplýsingum.

 Verið er að þýða og taka saman niðurstöður Fjölmenningarþingsins og mun fjölmenningaráðið byggja á þeim við úrvinnslu næstu verkefna.

Hægt er að koma fyrirspurnum og ábendingum til ráðsins með því að senda póst á fjolmenningarrad@reykjavik.is.   

Reykjavíkurborg óskar nýjum fulltrúum í fjölmenningarráði velfarnaðar í starfi og þakkar fráfarandi fulltrúum góð störf í þágu borgarinnar.