Aukin hagkvæmni í rekstri Reykjavíkurborgar
Sé miðað við fast verðlag hefur borgarsjóður 5,5 milljörðum minni tekjur í ár en hann hafði árið 2008. Þetta kemur fram í minnisblaði fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar sem kallast Þróun tekna og útgjalda A-hluta Reykjavíkurborgar 2008 – 2013 sem lagt var fyrir borgarráð í síðustu viku.
Minnisblaðið er forvitnilegt fyrir þær sakir að þar er þróun tekna og útgjalda sýnd annars vegar á breytilegu verðlagi hvers árs og hins vegar á föstu verðlagi miðað við vísitölu neysluverðs. Einnig er tekið með í reikninginn að mikilvægir og kostnaðarsamir málaflokkar hafa bæst við í rekstri borgarinnar en nauðsynlegt er að skoða rekstur borgarinnar í því ljósi. Í minnisblaðinu segir m.a. að til að tölur séu samanburðarhæfar sé nauðsynlegt að skoða tekjur samtals án tekna borgarinnar vegna þjónustu Reykjavíkurborgar við fatlaða sem kom inn af fullum þunga frá árinu 2011.
Í minnisblaðinu sést m.a. að tekjur vegna fasteignaskatts hafa lækkað umtalsvert. Á breytilegu verðlagi fékk Reykjavíkurborg 11.5 milljarða í fasteignaskatt árið 2008 en 11.3 milljarða í ár.
Séu þessar tölur færðar á fast verðlag miðað við áætlaða vísitölu neysluverðs árið 2013 fékk borgin 15,5 milljarða í fasteignaskatt árið 2008 en aðeins 11,7 milljarða í ár miðað við áætlað verðlag 2013.
Sé miðað við fast verðlag eru tekjur af útsvari einnig umtalsvert lægri í ár en þær voru árið 2008. Þá voru þær rúmir 56 milljarðar en eru um 53 milljarðar í ár.
Laun og launatengd gjöld hafa nánast staðið í stað hjá Reykjavíkurborg miðað við vísitölu neysluverðs. Á föstu verðlagi greiddi borgin tæpa 39 milljarða í laun árið 2008 en greiðir rúma 38 milljarða í ár. Annar rekstrarkostnaður hefur lækkað mikið sé vísitala neysluverðs tekin með í reikninginn. Árið 2008 var hann nærri 36.4 milljarði en er á þessu ári 29.3 milljarðar.
Að sögn Birgis Björns Sigurjónssonar, fjármálastjóra Reykjavíkurborgar, sýnir minnisblaðið m.a. að rekstrarútgjöld hafa minnkað að raunvirði og innkaup á þjónustu og vörum eru hagkvæmari en áður.
Minnisblað um þróun tekna og útgjalda A-hluta Reykjavíkurborgar 2008-2013.