Tóku við íslenskuverðlaunum úr hendi Vigdísar
Sextíu og þrír grunnskólanemar í Reykjavík tóku á degi íslenskrar tungu við Íslenskuverðlaunum unga fólksins í Bókmenntaborginni Reykjavík.
Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Norðurljósasal Hörpu, að viðstaddri Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta og verndara verðlaunanna.
Markmið Íslenskuverðlaunanna er að hvetja nemendur til framfara í tjáningu talaðs máls og ritaðs og vekja þau til vitundar um auðinn í íslenskri tungu.
Grunnskólanemarnir sem tóku við verðlaunum að þessu sinni hafa skarað fram úr á ýmsa vegu í íslenskunámi, frumlegum skrifum og tjáningu. Nokkrir þeirra eru tvítyngdir og verðugir fulltrúar nemenda af erlendum uppruna sem hafa náð góðum tökum á nýju tungumáli í nýju landi. Meðal verðlaunahafa eru ljóðskáld, leikritaskáld, ræðuskörungar og lestrarhestar á aldrinum 8 - 15 ára. Allir verðlaunahafar fengu til eignar veglegan verðlaunagrip sem hannaður er af Ingibjörgu Hönnu Bjarnadóttur.
Verðlaunaathöfnin var afar hátíðleg. Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundaráðs, setti athöfnina, en að því loknu ávarpaði Vigdís Finnbogadóttir ungu verðlaunahafana. Þá lék kvartett úr Skólahljómsveit Austurbæjar fyrir gesti og nemendur úr Dalskóla lásu og sungu.