Breytt deiliskipulag fyrir Hljómalindar- og Brynjureiti auglýst

Borgarráð hefur samþykkt að umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar auglýsi breytt deiliskipulag á svokölluðum Hljómalindar- og Brynjureitum.

Skipulagssvæði Hljómalindarreits afmarkast af Laugavegi, Klapparstíg, Smiðjustíg og Hverfisgötu. Breytt skipulagstillaga á reitnum hefur þegar verið kynnt hagsmunaaðilum og bárust 34 athugasemdir. Tillagan gerir ráð fyrir að á reitnum rísi friðsæl og notaleg byggð íbúða og atvinnuhúsnæðis. Á Hljómalindarreit verður áfram torg með aðgengi frá Laugavegi og Smiðjustíg en gert er ráð fyrir að það verði lokað frá miðnætti  sem einkasvæði íbúanna. Tillögunni hefur verið fagnað af Húsafriðunarnefnd enda gerir hún ráð fyrir minna niðurrifi eldri timburhúsa en í gildandi deiliskipulagi.

Arkitektastofan Studio Grandi hefur teiknað breytt skipulag á Hljómalindarreit fyrir Laugavegsreiti ehf sem eiga byggingarréttinn.

Borgarráð samþykkti einnig breytt deiliskipulag fyrir Brynjureit sem verður einnig auglýst. Á reitnum eru uppi svipaðar hugmyndir og á Hljómalindarreit. Timburhús með friðunargildi halda sér. 

Brynjureitur markast af Laugavegi, Vatnsstíg, Hverfisgötu og Klapparstíg, en deiliskipulagi verður breytt á hluta reitsins sem tekur yfir Hverfisgötu 40-44 , Klapparstíg 31 og Laugaveg 23, 27A og 27B. Breytt deiliskipulagstillaga á reitnum hefur þegar verið kynnt hagsmunaaðilum og bárust sex athugasemdir. Tillagan gerir ráð fyrir að á reitnum rísi íbúða- og atvinnuhúsnæði.  Á Brynjureit verður gert ráð fyrir nýbyggingum að Hverfisgötu 40, 42 og 44 og einnig að byggt verði á baklóðum. Gegnum reitinn frá Hverfisgötu að Laugavegi og Klapparstíg verður göngugata. Er gert ráð fyrir að meðfram göngugötunni verði verslunar-, atvinnu- og þjónustuhúsnæði á jarðhæð. Eins og á Hljómalindarreit verður göngugötunni lokar á næturnar.  Timburhúsið að Laugavegi 23 verður varðveitt og gert upp.

Arkitektastofan arkitektur.is hefur teiknað breytt skipulag á Brynjureit.

Deiliskipulagstillögurnar verða auglýstar í næstu viku. Hægt verður að gera athugasemdir við deiliskipulagstillögurnar í sex vikur eftir að auglýsingin birtist.