Innköllun vegna vanmerktra umbúða

Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur

Efni: Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar – vörur innihalda glútein (hveiti), sojaafurðir, mjólkurafurðir og mögulega sesamfræ og súlfíð.

Ginger ehf. og 10-11 hafa, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla og endurbæta umbúðamerkingar Grillaðs kjúklings, kjúklinga burrito, brownie og hafragrauts þar sem ofnæmis- og óþolsvaldar eru ekki merktir á umbúðum vörunnar.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Ginger.

Vöruheiti:  Grillaður kjúklingur . 

Framleiðandi:  Ginger, verslun 10-11 Lágmúla.

Umbúðir:  Bréfaöskjur.

Best fyrir:  Vörur framleiddar fyrir 17. nóvember 2012.

Dreifing:  Verslanir 10-11 í Reykjavík og 10-11 Keflavík.

Vörumerki:  Ginger.

Vöruheiti:  Kjúklinga burrito. 

Framleiðandi:  Ginger, verslun 10-11 Lágmúla.

Umbúðir:  Bréfaöskjur.

Best fyrir:  Vörur framleiddar fyrir 17. nóvember 2012.

Dreifing:  Verslanir 10-11 í Reykjavík og 10-11 Keflavík.

Vörumerki:  Ginger.

Vöruheiti:  Brownie.

Framleiðandi:  Ginger, verslun 10-11 Lágmúla.

Umbúðir:  Bréfpoki.

Best fyrir:  Vörur framleiddar fyrir 17. nóvember 2012.

Dreifing:  Verslanir 10-11 í Reykjavík og 10-11 Keflavík.

Vörumerki:  Ginger.

Vöruheiti:  Hafragrautur.

Framleiðandi:  Ginger, verslun 10-11 Lágmúla.

Umbúðir:  Plastbox.

Best fyrir:  Vörur framleiddar fyrir 17. nóvember 2012.

Dreifing:  Verslanir 10-11 í Reykjavík og 10-11 Keflavík.

Viðskiptavinir sem keypt hafa grillaðan kjúkling, kjúklinga burrito, brownie eða hafragraut merkt Ginger framleitt 16. nóvember eða fyrr og eru viðkvæmir fyrir hveiti, sojaafurðum, mjólkurafurðum, súlfíð eða sesamfræjum eru beðnir um að neyta þeirra ekki og farga eða skila til verslanna 10-11 eða Ginger gegn bótum.