Innköllun vegna vanmerktra ofnæmis - og óþolsvalda

Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur

Efni:  Innköllun af markaði vegna ómerktra ofnæmis- og óþolsvalda (Lesitín úr soja og valhnetur).

Yndisauki ehf., hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla Súkkulaðibita- og hnetukökur og Súkkulaði Brownie þar sem vörurnar innihalda ómerktan ofnæmis- og óþolsvald (Lesitín úr soja). Einnig nær innköllunin yfir Orkuklatta þar sem varan inniheldur ómerktan ofnæmis- og óþolsvald (jarðhnetur).

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Yndisauki 

Vöruheiti:  Súkkulaðibita- og hnetukaka, strikanúmer: 5694230012978

Vöruheiti:  Súkkulaði Brownie, strikanúmer: 5694230012923

Vöruheiti:  Orkuklatti, strikanúmer: 5694230012749

Framleiðandi:  Yndisauki, Vatnagörðum 6, 104 Reykjavík.

Dreifing:  Heilsuhúsið í Reykjavík, verslunin Vísir  Laugavegi, Víðir Skeifunni, Víðir Garðabæ, Garðheimar og Hreyfing  Glæsibæ.

Sojabaunir og afurðir úr þeim sem og jarðhnetur og afurðir úr þeim eru á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda. Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla. 

Tekið skal fram að varan er skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir afurðum úr sojabaunum eða jarðhnetum.  Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru viðkvæmir fyrir afurðum úr sojabaunum og/eða valhnetum eru beðnir um að skila henni gegn endurgreiðslu til Yndisauka ehf. Vatnagörðum 6, Reykjavík.