Kelduskóli og Háteigsskóli sigruðu á fyrsta undanúrslitakvöldi Skrekks
Fyrsta undanúrslitakvöld Skrekks 2012 hæfileikakeppni grunnskólanna fór fram 19. nóvember í Borgarleikhúsinu. Átta skólar kepptu um tvö sæti í úrslitum sem fara fram mánudaginn 21. nóvember.
Sú nýbreytni er í keppninni þetta árið að dómnefnd er skipuð sömu fulltrúum öll undanúrslitakvöldin og velur hún síðan tvö bestu atriðin sem að ekki komast áfram eftir undanúrslitin inn í lokahópinn.
Dómnefndina skipa þau:
Arnfríður S. Valdimarsdóttir, formaður dómnefndar og verkefnastjóri barnamenningar
Unnsteinn Manúel Stefánsson, söngvari úr Retro Stefson
Guðmundur Elías Knudsen, dansari
Melkorka Tekla Ólafsdóttir, leiklistarráðunautur
Ævar Þór Benediktsson, leikari
Dómnefndin var ekki öfundsverð af hlutverki sínu í kvöld þar sem atriðin í voru hvert öðru betra. Að hverju þeirra leggja margir hönd á plóg, en nemendur semja sjálfir alla dansa, skrifa texta og sauma búninga. Þá liggur mikil hugmyndavinna að baki hverju atriði og dýpri merking sem nemendum er hugleikin. Á fyrsta undanúrslitakvöldinu fjölluðu siguratriðin um mikilvæg málefni. Atriði Kelduskóla fjallaði um það að þurfa að taka erfiðar ákvarðanir og atriði Háteigsskóla fjallaði um sálarmorð.
Á milli atriða héldu Oddur Júlíusson og Saga Garðarsdóttir uppi góðri stemningu með söng og ljóðalestri.
Á morgun bjóðum við velkomna Austurbæjarskóla, Fellaskóla, Hagaskóla, Háaleitisskóla, Ingunnarskóla, Landakotsskóla, Seljaskóla og Ölduselsskóla.
Myndir af atriðunum eru á fésbókarsíðu Skrekks