Unnið verður að rafvæðingu samgangna

Borgarstjórn samþykkti einróma á fundi sínum í dag að láta vinna aðgerðaáætlun á vegum Reykjavíkurborgar til að auka hlut rafvæddra samgangna í nánustu framtíð og til lengri tíma. Stefnt er að því að aðgerðaráætlun liggi fyrir um miðjan mars 2013.

Í greinargerð sex manna starfshóps sem fylgir tillögunni er nefnt að hraði breytinga í samfélaginu varðandi orkuskipti í samgöngum ráðist af mörgum þáttum sem séu óráðnir í dag en muni væntanlega skýrast á allra næstu árum. Þar eru m.a. þættir eins og úrval og verð á bílum, skattaívilnanir ríkisins og fleira.

Tekið er fram að orkuöryggi með nýtingu innlendrar orku og minni umhverfismengun tengd rafbílanotkun séu mikilvægir þættir sem ekki hafa verið metnir til fjár. Þá er nefnt að notkun rafvæddra reiðhjóla og léttari bifhjóla hafi farið ört vaxandi í borginni.

Í greinargerðinni kemur fram að Reykjavíkurborg geti stuðlað að nýtingu rafmagns í samgöngum með ýmsu móti. Meðal þess sem starfshópurinn nefnir er að Reykjavíkurborg geti gengið á undan með góðu fordæmi með kaupum á rafknúnum bílum fyrir starfsemi borgarinnar og fyrirtæki hennar, að hugað verði að rafvæðingu almenningsvagna, að hleðslustaðir verði útbúnir við vinnustaði borgarinnar og í bílastæðahúsum sem hún rekur og að hraðhleðslupóstar verði settir upp á lykilstöðum í borginni.

Reykjavíkurborg hefur nú þegar tekið ákveðin skref í þá veru að metanvæða bílaflota borgarinnar. Á undanförnum misserum hafa 70 metanknúnir bílar leyst úr sér gengna bensínbíla af hólmi auk þess sem níu sorphirðubílar borgarinnar eru knúnir metani.

Borgin hefur einnig stigið fyrstu skrefin í rafbílavæðingu. Hún rekur nú tvo rafgeymabíla og einn tengitvinnbíl og er von á þremur rafbílum til viðbótar á næstunni.

Greinargerð um rafvæddar samgöngur.