Ingunnarskóli og Ölduselsskóli halda áfram í Skrekk
Öðru úrslitakvöldi Skrekks, hæfileikakeppni grunnskóla í Reykjavík, lauk með sigri Ingunnarskóla og Ölduselsskóla. Þeir munu því keppa til úrslita á lokakvöldi keppninnar mánudaginn 26. nóvember.
Nemendur Ingunnarskóla túlkuðu þátttöku barna í stríðsrekstri og hvernig þeir vilja ná fram breytingum á slíkum hörmungum.
Atriði Ölduselsskóla segir frá því að jarðarbúar passi ekki nógu vel upp á náttúruna og þá arfleifð sem komandi kynslóðir eiga að njóta.
Þriðja úrslitakvöldið verður í Borgarleikhúsi miðvikudaginn 21. nóvember og hefst keppnin klukkan átta.
Úrslitakvöldið mánudaginn 26. nóv. verður svo í beinni útsendingu í opinni dagskrá á Pop-TV sem hefst klukkan átta.
Myndir af atriðunum eru á fésbókarsíðu Skrekks