Mikil tjáningargleði á hönnunarkeppni félagsmiðstöðvanna Stíl 2012
Félagsmiðstöðin Hólmasel í Breiðholti var meðal sigurvegara í hönnunarkeppninni Stíll sem Samfés stóð fyrir en fimmtíu og ein félagsmiðstöð sendi inn búninga í keppnina. Þá skiluðu allir þátttakendur inn glæsilegum vinnumöppum þar sem þeir gerðu grein fyrir hugmyndavinnunni. Þema keppninnar að þessu sinni var Framtíðin og voru báru búningar, förðun og greiðsla þátttakenda vitni um mikla hugmyndaauðgi og sköpunargleði. Mikil gleði ríkti á keppninni og komu fram ungir listamenn úr félagsmiðstöðvunum, söngvarar og rapparar. Það var svo félagsmiðstöðin Rauðagerði í Vestmannaeyjum sem fór með sigur af hólmi í þessari skemmtilegu hönnunarkeppni.
Jón Gnarr afhenti sigurvegurum keppninnar verðlaun í lokin, en veitt voru verðlaun fyrir fatahönnun, förðun, hárgreiðslu og flottustu möppuna. Borgarstjóri sagði m.a. í ávarpi sínu; „Stíll 2012 er glæsileg keppni á sviði hönnunar. Allt sem við gerum á unglingsárunum til að tjá okkur er mikilvægt - það gerir okkur kleift að taka fleiri skref inn í fullorðinsárin. Og munið að við eigum rétt á því að klæða okkur eins og okkur sýnist“.
Þetta er í tólfta sinn sem hönnunarkeppni frélagsmiðstöðvanna fer fram en að þessu sinni keppti 51 lið frá öllu landinu. Krakkarnir í Hólmaseli hafa ástæðu til að fagna þessa dagana en tveir fulltrúar þeirrar félagsmiðstöðvar sigruðu líka í rappkeppninni Rímnaflæði og skemmtu þeir gestum á hönnunarkeppninni í Hörpu.