Starfsmenn Vesturgarðs kynna sér eldvarnarmál

Nú á dögunum var starfsfólk Vesturgarðs að kynna sér ýmislegt er viðkemur eldvarnarmálum á vinnustöðum. Það var Jón Pétursson slökkviliðsmaður höfðuborgarsvæðisins sem hélt skemmtilega og umfram allt gagnlega fræðslu sem skapaði skemmtilegar umræður. Eftir þessa góðu fræðslu fengu starfsmenn að slökkva eld með slökkvitæki, en fæstir höfðu gert það áður þannig að þetta var góð reynsla sem fólk fékk.

Hér má sjá nokkrar myndir frá galvöskum "slökkviliðsmönnum" Vesturgarðs.