Úrslitakvöld Skrekks að renna upp
Úrslitakvöld Skrekks 2012 er að renna upp eftir mikinn undirbúning og spenning hjá mörgum ungmennum borgarinnar. Yfir 900 grunnskólanemar hafa undanfarnar vikur undirbúið metnaðarfull sýningaratriði ásamt foreldrum, systkinum og vinum og vandamönnum sem eru ómissandi við búningagerð, förðun og hárgreiðslu, auk aðstoðar við að setja saman sviðsmynd fyrir hvert atriði.
Átta lið keppa til úrslita í Borgarleikhúsinu í kvöld; Ölduselsskóli, Háteigsskóli, Ingunnarskóli, Kelduskóli, Fellaskóli, Hlíðaskóli, Austurbæjarskóli og Breiðholtsskóli. Keppnin hefst klukkan átta og er löngu uppselt.
Dómnefnd kvöldsins er skipuð fagaðilum í listgreinum en þar sitja:
Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri,
Steinunn Birna Ragnarsdóttir tónlistarstjóri Hörpu,
Lára Stefánsdóttir listrænn stjórnandi ÍD
Víkingur Kristjánsson leikari Vesturport.
Formaður dómnefndar: Adda Rúna Valdimarsdóttir Verkefnastjóri barnamenningar
Keppnin hefst klukkan 20:00 og er sýnt beint frá kvöldinu í opinni dagskrá á PoppTíví og á www.visir.is.
Jón Gnarr borgarstjóri mun afhenda sigurvegurum keppninnar verðlaunin, svo og Oddný Sturludóttir formaður skóla- og frístundaráðs og Eva Einarsdóttir formaður íþrótta- og tómstundaráðs.