Breiðhyltingar þinga um framtíðina
Breiðholtsþing verður haldið miðvikudagskvöldið 28. nóvember, frá 20.00 til 22.00, í menningarmiðstöðinni Gerðubergi.
Breiðholtsþing er opinn vettvangur fyrir íbúa til að hafa áhrif á uppbyggingu og framþróun í hverfinu sínu. Á þessu þingi verður horft til framtíðar. Óskar Dýrmundur Ólafsson hverfisstjóri í Breiðholti mun stjórna þinginu.
Í Breiðholti búa tæplega 21 þúsund manns og er það annað fjölmennasta hverfi borgarinnar. Breiðhyltingar, jafnt úr efra Breiðholti, neðra Breiðholti og Seljahverfi eru hvattir til að taka þátt í þinginu, hlúa að íbúalýðræðinu og hafa með því áhrif á framtíð hverfisins.
Jón Gnarr borgarstjóri verður gestur þingsins.