Fleiri karlar stunda sund - konur sækja frekar um styrki til menningarmála

Tilraunaverkefni í kynjaðri fjárhags- og starfsáætlunargerð hjá Reykjavíkurborg sýna að fleiri konur en karlar nota samráðsvefinn Betri Reykjavík. Fleiri karlar en konur sækja sundlaugar Reykjavíkur og fleiri konur en karlar sækja um styrki til Menningar- og ferðamálaráðs.

 

Með kynjaðri fjárhags- og starfsáætlunargerð er miðað að því að hægt sé að greina hvort ákvarðanir um ráðstafanir fjármuna hafi ólík áhrif á kynin og stöðu þeirra. Þessi aðferð hefur verið að ryðja sér til rúms á undanförnum áratugum og hefur orðið sífellt fyrirferðarmeiri í meðferð fjármuna hjá opinberum aðilum víðs vegar í heiminum.

 

Fljótt á litið virðast fjárlög og fjárhagsáætlanir ekki mismuna kynjunum eða öðrum þjóðfélagshópum. Þegar grannt er skoðað kemur oft í ljós að fjárúthlutanir eru ekki að nýtast kynjunum jafnt og er því ekki um  kynhlutleysi að ræða heldur kynblindu   Markmiðið með kynjaðri fjár- og starfsáætlunargerð er að draga fram þennan mismun  og leita leiða til að tryggja jafna og sanngjarna dreifingu fjármagns og þjónustu. Með kynjaðri  fjárhags- og starfsáætlunargerð  fást upplýsingar um hvaða áhrif ákvarðanir stjórnvalda t.d. um fjárútlát hafa á samfélagið. Þær upplýsingar gera stjórnvöld betur í stakk búin til að taka upplýstar ákvarðanir í samræmi við stefnu sína og markmið. Gagnsæi eykst og ljóst er hverjum fjármunir eru að nýtast. 



Áfangaskýrsla um tilraunaverkefni í kynjaðri fjárhags- og starfsáætlunargerð (PDF 2,12 MB) sem borgin réðist í á vordögum hefur nú litið dagsins ljós.   Verkefnin voru 16 talsins, mjög fjölbreytt og  frá hinum ýmsu sviðum borgarinnar.

Verkefni skrifstofu borgarstjóra og borgarritara snérist um að rannsaka kyn notenda á samráðsvefnum Betri Reykjavík  og að greina hvort karlar eða konur ættu í ríkara mæli erindi sem ratað hafa af vefnum til fagráða Reykjavíkurborgar. Niðurstaðan er sú að af 6.121 notendum eru konur 3.063, og karlar 2.582, 476 notendur er ekki hægt að kyngreina þar sem um ýmsa hópa eða félög er að ræða.  Þetta þýðir að konur voru 50% notenda vefsins á móti 42% karla en 8%  notenda voru hópar eða félög. Heildarfjöldi hugmynda var 1.461. Þar af áttu karlar 735, konur 712 og hópar og félög  14. Karlar áttu skv. þessu 50% innsendra hugmynda, konur 49% og hópar og félög 1%.

 

Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur rekur sex sundlaugar. Árið 2011 voru gestir sundlauganna 1.770.728.  Í verkefninu var aðsókn að sundstöðum Reykjavíkur kyngreind. Í ljós kom að fleiri karlmenn en konur sækja sundlaugarnar eða 54% þegar litið er til allra sundlauganna. Mikill munur er á þó á aðsókn kynjanna eftir því hvaða laug á í hlut og eftir tíma dags. Áberandi fleiri karlmenn (68%) en konur sækja t.d. Sundhöllina. Jafnasta kynjaskiptingin í heimsóknum í laugarnar er milli kl. 9:00 og16:00, (kvk. 48%).  og kk. 52%. Töluvert fleiri karlmenn (58%) en konur sækja laugarnar á morgnana frá kl. 6:30-9:00. Í aldurshópnum 0-18 ára er aðsókn meiri hjá stúlkum en drengjum eða 55% þetta breytist svo með hækkandi aldri.

 

Rannsakaðar voru styrkveitingar Menningar-  og ferðamálaráðs vegna áranna 2007-2011 og þá hvort halli á annað kynið í styrkveitingum. Í ljós kom að  á umræddu tímabili hefur orðið merkjanleg og stígandi aukning á hlut kvenna í styrkjaumsóknum og styrkveitingum Menningar- og ferðamálaráðs hvað varðar fjölda, heildarupphæð og meðalupphæð umsókna og heildar- og meðalupphæð úthlutunar.

Á Borgarbókasafni Reykjavíkur var athugað hvort mismunur væri á innkaupum eftir kyni  höfunda. Árið 2011 komu út 112 titlar eftir konur og 173 eftir karla. Keypt voru 1.960 eintök eftir konur eða að meðaltali 17,5 eintök af hverjum titli en 2.645 eintök eftir karla eða að meðaltali 15,2- eintök af hverjum titli.

Niðurstöður sumra verkefna kalla ekki á neinar breytingar þar sem fjárútlát eru að nýtast báðum kynjum nokkuð jafnt. Niðurstöður annarra verkefna kalla hins vegar á meiri rýni og mögulegar aðgerðir.  Það má velta því fyrir sér hvað valdi því að konur sæki sundlaugar í minna mæli en karlar eftir 18 ára aldur. Má rekja það til þess að þær beri meiri ábyrgð á heimili og börnum en karlar í íslensku samfélagi eða til þess að samfélagið geri meiri kröfur til útlits kvenna en karla eða eru sundlaugarnar ekki að mæta þeim kröfum sem konur gera til líkamsræktarstaða? Vera má að samverkandi þættir séu að verki en þetta þarf að skoða nánar.