Góður árangur í rekstri Reykjavíkurborgar

Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A og B hluta, var jákvæð um 2.218 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 2.098 mkr. Rekstrarniðurstaðan er því 120 mkr betri en gert var ráð fyrir þrátt fyrir að fjármagnsgjöld væru 1.507 mkr hærri en áætlun. 

Niðurstaðan sýnir að rekstur samstæðunnar er að styrkjast. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 13.328 mkr sem er um 1.287 mkr betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir. Í þessu samhengi skiptir mestu að algjör viðsnúningur hefur orðið á rekstri Orkuveitu Reykjavíkur sem er eitt af B-hluta fyrirtækjum borgarinnar.

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt efnahagsreikningi námu í lok tímabilsins samtals 465.323 mkr, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 316.147 mkr og eigið fé nam 149.176 mkr en þar af nam hlutdeild meðeigenda 8.236 mkr.

Rekstrarniðurstaða A-hluta var aðeins neikvæð um 81 mkr en áætlanir gerðu ráð fyrir að hún yrði neikvæð um 1.245 mkr. Niðurstaðan er því mun betri en gert var ráð fyrir, eða sem nemur 1.164 mkr. Hagstæðari niðurstöðu má m.a. rekja til hærri skatttekna og hærri greiðslna frá Jöfnunarsjóði.   Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 437 mkr en áætlanir gerðu ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 1.693 mkr. Útkoman er því 1.130 mkr betri en áætlun gerði ráð fyrir.  

Fjárhagslegur styrkur A-hluta borgarsjóðs er mikill hvort sem litið er til eiginfjárstöðu eða hefðbundinna skuldaþekjuhlutfalla. Eiginfjárhlutfall, skuldahlutfall og sjóðstreymi samstæðunnar er einnig að styrkjast og eru það mjög jákvæð teikn.

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, þ.e. rekstur fagsviða, og Eignasjóð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Bílastæðasjóður Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Orkuveita Reykjavíkur, Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins, Slökkvilið höfuðborgar¬svæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf.