Jólakötturinn býr í Laugardal

Aðventan í Laugardalnum býður upp á eitthvað fyrir alla fjölskylduna. Í fallegu umhverfi getur fjölskyldan átt saman skemmtilegan dag; kíkt á dýrin í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, skautað í kringum jólatré í Skautahöllinni, heimsótt Ásmundarsafn, gengið um Grasagarðinn, fengið sér heitt kakó og ristaðar möndlur á Café Flóru og stungið sér í Laugardalslaugina. Sjálfur jólakötturinn hefur svo komið sér vel fyrir í Húsdýragarðinum þar sem hann býr yfir jólin. Óargadýrið bregður sér oft af bæ, fer í göngutúr um Laugardalinn og kemur þá víða við og veldur usla. Og ef vel er að gáð má sjá spor eftir jólaköttinn og kannski glittir í glyrnur í glugga… 



Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn

Í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum geta hugrakkir gestir heimsótt jólaköttinn en reistur hefur verið hryssingslegur kofi handa honum í garðinum sem hann dvelst í flesta daga. Svo virðist sem hann fari á flakk að nóttu og ónáði dýrin og valdi usla og næturvörður garðsins kemur ábendingum um ferðir hans til gesta. Hægt verður að skella sér í ferðir í Jólahringekjunni, Jólalestinni og á hestbak á hestum garðsins um helgar. Dýrin fá jólatuggu, jólasíld og hvað sem við á og jólalegt tilboð verður handa mannfólkinu í Kaffihúsi garðsins sem er opið alla daga líkt og garðurinn. Nánari upplýsingar um dagskrá desember má sjá á www.mu.is

 

Grasagarðurinn

Á aðventunni verður róleg og ljúf stemning í Grasagarðinum. Café Flóra verður opin allar helgar fyrir jól, frá kl. 12-16.30, og þar verða seldar ljúffengar jólaveitingar. Heitt kakó, jólaglögg, ristaðar möndlur að hætti Marentzu og fleira gómsætt í anda jólanna. Í garðskálanum býðst gestum að skreyta Umhyggjutréð og búast má við skemmtilegum uppákomum allar aðventuhelgarnar. Nánari upplýsingar um dagskrá hverrar helgar verða birtar á www.grasagardur.is



Skautahöllin

Í Skautahöllinni er fagurskreytt jólatré á miðju svellinu sem skautað verður í kringum við jóladiskótónlist fram á nýja árið. Allar helgar fram að jólum sýnir listhlaupadeild Skautafélags Reykjavíkur listhlaup kl.15. Frá og með 20. desember verður Skautahöllin opin frá kl. 13-18 alla daga. Lokað verður á aðfangadag og jóladag en opið á milli jóla og nýárs. Nánari upplýsingar um opnunartíma í desember er að finna á www.skautaholl.is

Laugardalslaug

Í Laugardalslauginni er tilvalið að taka sundsprett undir stjörnubjörtum himni og láta líða úr sér í volgum söltum sjó við kyndlaljós á góðviðriskvöldum. Laugardalslaug er opin alla virka daga frá kl. 6.30-22 og frá 8-22 um helgar. Á Þorláksmessu verður opið til 18 og á aðfangadag til 12.30. Lokað verður á jóladag en opið annan í jólum frá 12-18 og á milli jóla og nýárs eins og venjulega. Á gamlársdag verður opið til 12.30 og á nýársdag frá 12-18. Athugið að vegna framkvæmda við búningsklefa er gengið inn um gömlu afgreiðsluna við pylsuvagn. Nánari upplýsingar um laugina má finna á www.laugardalslaug.is

Ásmundarsafn

Í amstri jólanna er notalegt að slaka á og njóta augnabliksins í faðmi fagurra listaverka. Ásmundarsafn er fyrrum heimili myndhöggvarans Ásmundar Sveinssonar. Útilistaverkin í garðinum umhverfis safnið eru einstök og eftirsóknarvert fyrir unga fólkið að skoða kynjaverurnar sem verkin sýna. Laugardaginn 8. desember kl. 14.00 verður dagskrá í Ásmundarsafni tileinkuð sögu fyrstu byggðar í Laugardalnum. Þá rekja starfsmenn Minjasafns Reykjavíkur, í máli og myndum, sögu hverfishlutanna sem mynda borgarhlutann Laugardal. Sunnudaginn 15. desember kl. 14  verður jólastund og söguleikhús sem Guðrún Ásmundsdóttir leikkona leiðir. Allan desember verður tilboð á jóla- og gjafakortum í Ásmundarsafni. Dagleg opnun er frá kl. 13 – 17 en lokað er 24., 25. og 31. des. og 1. jan.

Verið velkomin í Jóladalinn

www.facebook.com/joladalur