Aukin áhersla á gæði máltíða í leik- og grunnskólum

Ný mötuneytisþjónusta fyrir skólamötuneyti en áfram eldað á hverjum stað í leik- og grunnskólum borgarinnar. Samræmd innkaup og metnaðarfullur þjónustustaðall innleiddur.

Borgarráð hefur samþykkt að leggja aukna áherslu á gæði skólamáltíða í leik – og grunnskólunum. Áfram verður eldað í hverjum skóla, en ráðnir verða til starfa sérfræðingar á sviði næringar, matreiðslu og reksturs mötuneyta til nýrrar mötuneytisþjónustu á skóla- og frístundasviði. Þá verður innleiddur þjónustustaðall mötuneyta fyrir öll eldhús leik- og grunnskóla, að því gefnu að hann auki gæði en verði þó hagkvæmur.

Í greinargerð með tillögu borgarstjóra kemur fram að verkefni þjónustudeildar mötuneytismála verði m.a. að stýra sameiginlegum innkaupum, sinna fræðslu, símenntun og ráðgjöf til stjórnenda og starfsfólks mötuneyta, veita ráðgjöf um gerð matseðla, tryggja gæði matar og sinna gæðaeftirliti.

Í janúar 2011 skipaði borgarstjóri starfshóp sem hafði það hlutverk að vinna að endurskipulagningu á rekstri mötuneyta Reykjavíkurborgar svo einfalda mætti rekstur þeirra, auka gæði og lækka framleiðslukostnað. Greining starfshópsins á stöðu í eldhúsum/mötuneytum leiddi í ljós þá meginniðurstöðu að aðstaða til framleiðslu matar og mönnun er mjög mismunandi. Jafnframt er hvert mötuneyti rekið sem sjálfstæð rekstrareining sem leiðir til ólíkra þjónustuáherslna og verklags, auk þess sem skráning rekstrartengdra upplýsinga er mismunandi. Slíkt skapar mismunandi þjónustugæði og flækjustig við eftirlit og innköllun rekstrarupplýsinga.

Með vísan til þessa lagði starfshópurinn til að stofnuð yrði mötuneytisþjónusta Reykjavíkurborgar sem hafi umsjón með mötuneytismálum á skóla- og frístundasviði, en eftir sem áður verði matur framreiddur á hinum ólíku starfsstöðum.

Úttekt starfshópsins náði til allra mötuneyta og matstaða Reykjavíkurborgar, utan þeirra sem eru á vegum velferðarsviðs. Þannig voru skoðuð 222 eldhús, mötuneyti og starfseiningar, eða 36 frístundaheimili og 62 aðrir starfsstaðir á vegum íþrótta- og frístundasviðs, 39 grunnskólar, 78 leikskólar, fimm starfsstöðvar á vegum framkvæmdasviðs borgarinnar, eldhúsið í Ráðhúsi og á Höfðatorgi. Á þessum stöðum er matarþjónusta í boði fyrir 19.152 börn og unglinga og 4.405 starfsmenn.