Kaffihúsakvöld í Fjörgyn
Kaffihúsakvöld fyrir alla í kvöld kl. 19.30-22.00 í félagsmiðstöðinni Fjörgyn í Grafarvogi.
Dagana 4. - 7. desember munu unglingar og félagsmiðstöðvar á vegum frístundamiðstöðvarinnar Gufunesbæjar í Grafarvogi standa fyrir Góðgerðaviku til styrktar fjölskyldu Davíðs Arnar Arnarssonar sem lést á dögunum eftir baráttu við krabbamein.
Góðgerðaráð unglinganna hefur undanfarna tvo mánuði undirbúið þessa viku og hefur ráðið skipulagt í Foldaskóla. Á kaffihúsakvöldinu munu Jón Jónsson, Geir Ólafs og Ari Eldjárn koma fram ásamt ungu tónlistarfólki. Auk þess verða seldir happdrættismiðar og léttar veitingar. Allir sem hafa áhuga á að styrkja gott málefni eru hjartanlega velkomnir. Aðgangseyrir er 300 krónur og kostar happdrættismiðinn 200 krónur.
Þeim sem hafa ekki tök á að mæta á kaffihúsakvöldið en langar að styrkja fjölskylduna er bent á styrktarreikning: 0544-05-402441, kt. 111177-4819.