Góðgerðamarkaður frístundaheimila í Grafarvogi

Börn á frístundaheimilum í Grafarvogi halda góðgerðamarkað fimmtudaginn 6. desember kl. 16. í Hlöðunni við Gufunesbæ.



Börnin munu selja ýmsa muni sem þau hafa útbúið og mun  ágóðinn renna til Barnaspítala Hringsins. Einnig verður hægt að fá kakó og piparkökur á vægu verði.



Boðið verður upp á sannkallaða jólastemmingu í Hlöðunni um leið og gestir geta notið samvista við skemmtileg ungmenni og styrkt gott málefni.