Fjárhagsáætlun 2013: Velferðarkerfið styrkt og fjárfestingar auknar

Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2013 og Fimm ára áætlun 2013 – 2017 var samþykkt í borgarstjórn í gær.

Segja má að allar tölur í fjárhagsáætlun lýsi batnandi hag hjá Reykjavíkurborg. Borgin er í óða önn að greiða niður skuldir samstæðunnar, A og B-hluta, en þar eru skuldir Orkuveitu Reykjavíkur lang veigamestar.  Gert er ráð fyrir 7,6 milljarða króna afgangi hjá samstæðunni en að A-hlutinn sem er hinn eiginlegi rekstur borgarinnar skili 329 milljón króna afgangi  árið 2013.

Áfram verður beitt ábyrgri fjármálastjórn, aðhaldi og stefnufestu í rekstri Reykjavíkurborgar  en engar niðurskurðaraðgerðir eru fyrirhugaðar á árinu 2013.

Fjölskylduvæn uppbygging í Úlfarsárdal og Hverfisgata endurbætt

Reykjavíkurborg mun verja tæpum sjö milljörðum til fjárfestinga á árinu. Meðal stórra verkefna sem fyrirhuguð eru á árinu 2013 eru t.d. gagngerar endurbætur á Hverfisgötu sem munu hefjast á árinu. Þá mun undirbúningur uppbyggingar á skólahúsnæði, sundlaug og íþróttasal í Úlfarsárdal hefjast á árinu en alls mun Reykjavíkurborg leggja 1.850 milljónir í það verkefni á næstu fimm árum. Meginþungi þess verkefnis verður árin 2015 og 2016.

Við vinnslu fjárhagsáætlunar hefur mjög verið litið til aðgerða á vinnumarkaði sem nauðsynlegt er að ráðast í á næsta ári enda hefur borgin tekið með ábyrgum og ákveðnum hætti á málefnum atvinnulausra.  Er gert ráð fyrir því í fjárhagsáætlun.

Rúmur helmingur útgjalda aðalsjóðs borgarinnar fer til skóla- og frístundamála en Reykjavíkurborg hefur náð góðum árangri í skólamálum og býður upp á lægstu þjónustugjöld á landinu fyrir fjölskyldufólk. Á næsta ári verður auknu fjármagni veitt til sérkennslu og afleysingahlutfall í leikskólakennslu verður fært til þess horfs sem var fyrir hrun.

Mikil niðurgreiðsla á skuldum

Fimm ára áætlun Reykjavíkurborgar gerir ráð fyrir mikilli niðurgreiðslu skulda. Aðgerðaáætlun fyrir Orkuveitu Reykjavíkur hefur gengið eftir og skiptir það miklu fyrir afkomu samstæðunnar.

Áætlað er að afkoma samstæðunnar batni um 5,6 milljarða króna á tímabilinu til 2017 og að hún muni skila jákvæðri niðurstöðu allt tímabilið.

Skuldir og skuldbindingar dragast saman um 51,4 milljarða eða 17% og munu nema 249 milljörðum við lok tímabilsins.

Eiginfjárhlutfall samstæðunnar mun batna verulega samhliða niðurgreiðslu skuldastabbans. Eigið fé eykst um 48,8 milljarða eða 33,6% og verður rúmir 194 milljarðar í lok tímabilsins. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar hækkar á tímabilinu úr 32% árið 2013 í rúmlega 43% árið 2017 gangi áætlanir eftir.

Stöðugt batnandi afkoma

A-hluti samstæðunnar nýtur batnandi hags á tímabilinu þannig að hann mun skila ört hækkandi jákvæðri afkomu. Árið 2013, 329 milljónum króna, 2014 1,9 milljörðum króna, 2015 1,8 milljarði, 2016 2,2 milljörðum og 2017 3,1 milljarði. Sem fyrr er mikilvægt að A-hlutinn sé rekinn með aðhaldi og með afgangi til að viðhalda sterkri fjárhagsstöðu þar sem borgarsjóður er bakhjarl skuldugra B-hluta fyrirtækja eins og Orkuveitu Reykjavíkur.

„Á síðustu árum hefur þessi meirihluti unnið markvisst að því að koma á stöðugleika í rekstri borgarinnar og greitt niður skuldir samstæðunnar. Við höfum sameinað fagsvið og skóla til hagræðingar fyrir alla borgarbúa. Við höfum ástundað ábyrga fjármálastjórn sem nú er að skila sér í bættum hag. Á sama tíma höfum við staðið vörð um öflugt velferðarkerfi borgarinnar og styrkt það. Framtíðin er björt fyrir Reykjavík. Hún er nú orðin borg velferðar, friðar og mannréttinda og þannig borg viljum við búa í. Þannig borg vekur athygli á heimsvísu,“ segir Jón Gnarr borgarstjóri.

Myndræn framsetning fjárhagsáætlunar 2013

Breytingatillögur Besta flokksins og Samfylkingar á frumvarpi að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2013

Breytingatillögur Besta flokksins og Samfylkingar á frumvarpi að fimm ára áætlun 2013 - 2017