Jóladalurinn
Aðventan í Laugardalnum býður upp á eitthvað fyrir alla fjölskylduna. Í fallegu umhverfi getur fjölskyldan átt saman skemmtilegan dag; kíkt á dýrin í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, skautað í kringum jólatré í Skautahöllinni, heimsótt Ásmundarsafn, gengið um Grasagarðinn, fengið sér heitt kakó og ristaðar möndlur á Café Flóru og stungið sér í Laugardalslaugina. Sjálfur jólakötturinn hefur svo komið sér vel fyrir í Húsdýragarðinum þar sem hann býr yfir jólin. Óargadýrið bregður sér oft af bæ, fer í göngutúr um Laugardalinn og kemur þá víða við og veldur usla. Og ef vel er að gáð má sjá spor eftir jólaköttinn og kannski glittir í glyrnur í glugga…
Jólalegt er orðið um að lítast í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þar sem dýr og menn eru komin í hið besta jólaskap. Kýrin Sæbjörg er nýborin og kvígan hennar sem hlotið hefur nafnið Sædís braggast vel. Enn er beðið eftir kálfi frá kúnni Brák sem átti tal sl. miðvikudag.
Jólakötturinn í Hafrafelli.
Gæludýr Grýlu – sjálfur Jólakötturinn heldur til í Hafrafelli (við refagirðinguna) á opnunartíma Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. Þeir sem þora eru hvattir til að heimsækja hann. Í sama húsi er einnig að finna safn uppstoppaðra fugla auk lifandi skriðdýra og froskdýra.
Jólakötturinn 2012 valinn
Félagar í Kynjaköttum, Kattaræktarfélagi Íslands verða með kynningu á köttum sunnudaginn 9. desember frá klukkan 13:00 til 16:00 í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Á kynningunni geta gestir kosið Jólaköttinn 2012 en þeir sem ekki eiga heimangengt geta tekið þátt í kosningunni á Facebook síðu Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. Eigendur Jólakattarins hljóta verðlaun frá Murr kattafóðri og Sælgætisgerðinni Freyju auk þess sem ljósmyndari mun mynda Jólaköttinn.
Jólahringekja, jólalest og jólaskreyttir hestar.
Opið verður í hringekju og lest þegar veður og færð leyfir um helgar í desember frá klukkan 13:00 til 16:00. Um helgar verður einnig boðið upp á hestateymingu frá klukkan 14:00 til 14:45.
Skólahljómsveit Austurbæjar
Ungt tónlistarfólk úr Skólahljómsveit Austurbæjar spilar víða í jóladalnum Laugardal og gleður gesti með jólatónum frá klukkan 14:00 til 16:00 laugardaginn 8. desember.
Sögustundir með Sólu dóttur Grýlu.
Sóla dóttir Grýlu mun mæta á Sögubílnum Æringja næstu vikur og segja gestum sögur af jólakettinum. Einnig verður tilboð á kakó og smákökum í Kaffihúsum fyrir hópa og hafa þó nokkrir leik- og grunnskólar nú þegar bókað.
Sóla verður með sögustundir eftirfarandi daga;
Þriðjudagur 11. desember kl. 10:15
Miðvikudagur 12. desember kl. 10:15
Fimmtudagur 13. desember kl. 10:15 og kl. 13:30
Þriðjudagur 18. desember kl. 10:15
Fimmtudagur 20. desember kl. 13:30