Trjágróður hindrar snjóruðningstæki
Dráttarvélar sem ryðja snjó og sanda göngu- og hjólastíga hafa þurft frá að hverfa á nokkrum stöðum í borginni þar sem trjágróður hindrar för. Ástæða er til að hvetja íbúa til að klippa gróður sem vex út fyrir lóðamörk og hafa verður í huga að hæð upp í neðstu grein við lóðamörk sé ekki lægri en 2,6 metrar.
Á hverju ári verður alltaf eitthvað tjón á tækjum vegna trjágróðurs og eru það oftast speglar, kastarar og öryggisljós sem brotna af, en einnig eru dæmi um að toppar dráttarvélanna hafi brotnað. „Þetta er sérlega sárt núna þegar við erum með nýju vélarnar,“ segir Sigurður Geirsson verkstjóri véladeildar, en nýverið voru sjö nýir traktorar teknir í gagnið.
Tengt efni:
Tengd frétt: Klárir í snjóinn á nýjum dráttarvélum
Upplýsingasíða um trjágróður út fyrir lóðamörk