Friðarljós í skýjaluktum á Alþjóðlegum mannréttindadegi
Fjöldi fólks var samankominn við Iðnó nú síðdegis til þess að taka þátt í athöfn sem mannréttindaskrifstofa Reykjavíkur og pólska félagið Projekt:Polska efndu til í tilefni Alþjóðlega mannréttindadagsins í dag.
Viðstaddir fengu úthlutað svokölluðum skýjaluktum sem kveikt er á og láta þær líða um himininn í nafni friðar og mannréttinda. Jón Gnarr borgarstjóri ávarpaði viðstadda og tendraði fyrstu luktina. Eftir að belgurinn á luktinni hafði fyllst af heitu lofti leið hann af stað upp í himininn. Rigning og vindur gerðu þó það að verkum að sumar komust ekki langt en nokkrar náðu þó að fljúg á brott og mátti sjá ljósið frá þeim berast um himininn fyrir ofan Tjörnina. Friðarljósin voru bæði til að lýsa yfir stuðningi við þá sem berjast fyrir mannréttindum hvarvetna í heiminum og til að votta samhug með fórnarlömbum mannréttindabrota.