Sungið af krafti undir Esjuhlíðum

Börn og unglingar á Kjalarnesi tóku lagið í morgun með Halldóri Gunnari Pálssyni stjórnanda Fjallabræða. Hann hefur á undanförnum mánuðum farið um landið og hljóðritað fjöldasöng í lokakafla á nýju lagi sem heitir Ísland. Verkefnið kallast Rödd þjóðarinnar. Nú þegar hafa 25.000 manns sungið með í lokakaflanum.

Óhætt er að segja að Halldór hafi fengið góðan hljómgrunn fyrir þetta skemmtilega verkefni í skólasamfélaginu á Kjalarnesi í morgun. Sungið var hástöfum á sal í Klébergsskóla þegar börn og starfsfólk af leikskólanum Bergi og úr Klébergsskóla söfnuðust þar saman og leyndust margir stórsöngvarar í þeim myndarlega hóp. Yngsti þátttakandinn í uppákomunni var 15 mánaða gamall og geri aðrir betur.