Ofbeldi þrífst í myrkri þagnarinnar
Ofbeldi þrífst í myrkri þagnarinnar skrifar Jón Gnarr borgarstjóri í pistli sem birtist á vef borgarinnar í dag.. Þannig lýkur hann 16 daga átaki borgarinnar gegn kynbundnu ofbeldi þar sem fulltrúar í mannréttindaráði og starfsfólk borgarinnar tóku höndum saman og fjölluðu um kynbundið ofbeldi, hver með sínum hætti á vef borgarinnar.
Af sama tilefni voru í dag gefnir út límmiðar um þá þjónustu sem Neyðarmóttakan veitir. Upplýsingarnar eru á ensku íslensku og pólsku og er útgáfan samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, Öðlinganna, Landspítalans og Embættis landlæknis. Reykjavíkurborg mun sjá um að dreifa þeim á skemmtistaði, kaffihús og veitingastaði. Einnig voru gerð upplýsingaspjöld til að hengja upp í öllum framhaldsskólum landsins en tæplega 70% þolenda sem leita til Neyðarmóttökunnar eru 25 ára eða yngri. Neyðarmóttakan gaf einnig út upplýsingabækling um áfallaviðbrögð við kynferðisofbeldi. Markmið bæklingsins er að veita þolendum kynferðisofbeldis og aðstandendum þeirra upplýsingar um algeng viðbrögð við ofbeldinu og leiðir til að takast á við þau. Með orðum lýsum við upp myrkrið segir í pistli borgarstjóra – þessar upplýsingar eru ein leið til þess.
Límmiðana má einnig nálgast á mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar með því að hringja í 411 4153 eða senda tölvupóst á netfangið halldora.gunnarsdottir@reykjavik.is