Breytingar á gjaldskrám um áramótin
Um áramótin breytast gjaldskrár hjá leikskólum, frístundaheimilum og í skólamötuneytum. Gjöld munu hækka í samræmi við samþykkt borgarstjórnar um gjaldskrárbreytingar og frumvarp að fjárhagsáætlun fyrir árið 2013.
Leikskólagjald fyrir átta stunda vistun verður frá og með 1. janúar 25.880 kr. á mánuði, en var áður 24.501 kr. Foreldrar sem eiga tvö börn í leikskóla og/eða annað hjá dagforeldri fá áfram 75% afslátt af námsgjaldi annars barns og þriðja barn nýtur 100% afsláttar.
Frístundagjald verður frá og með 1. janúar 11.940 kr. á mánuði fyrir 5 daga vistun, en var áður 11.300 kr. Foreldrar sem eiga tvö börn á frístundaheimili fá áfram 75% afslátt af frístundagjaldi annars barns og þriðja barn nýtur 100% afsláttar.
Gjald fyrir mánðarlega mataráskrift í skólamötuneyti verður frá og með 1. janúar 6.600 kr. á mánuði, en var áður 6.200 kr. Foreldrar greiða skólamáltíð fyrir tvö börn en önnur njóta 100% afsláttar.
Eftir þessar hækkanir verða leikskólagjöld , frístundagjöld og mötuneytisáskrift í Reykjavík sem fyrr með þeim lægstu í landinu enda yfirlýst stefna borgarinnar að gjaldskrár skuli vera sanngjarnar og taka mið af aðstæðum barnmargra fjölskyldna.