Rimaskóli sigraði í eldri flokki á jólaskákmótinu
Sigurvegarar í eldri flokki á jólaskákmóti SFS og ÍTR komu líka úr Rimaskóla, en sveitir skólans unnu tvöfaldan sigur í yngri flokkunum. Nemendur úr 8. - 10. bekk kepptu í eldri flokki og sendu fjórir skólar sveitir til leiks; Árbæjarskóli, Hagaskóli, Hólabrekkuskóli og Rimaskóli.
Engin stúlknasveit var með að þessu sinni. Þátttaka á mótinu var heldur dræm í samanburði við síðustu ár, en jafnan hafa um og yfir 10 sveitir keppt á þessu móti í eldri flokki. Í öruggu 1. sæti urðu piltarnir úr Rimaskóla með 22,5 af 24 v. Hagaskóli var í öðru sæti með 13 v. og Árbæjarskóli í því þriðja með 8,5 v. Sigursveitin úr Rimaskóla var þannig skipuð:
- Dagur Ragnarsson
- Oliver Aron Jóhannesson
- Jón Trausti Harðarson
- Kristófer Jóhannesson
- vm. Theodór Örn Inacio Ramos Rocha
Jólaskákmótið fór fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur. Mótsstjóri var Soffía Pálsdóttir, SFS. Skákstjórar voru Ólafur H. Ólafsson, sem hefur verið skákstjóri í öll 30 árin og Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir, formaður T.R. Birna Halldórsdóttir sá um veitingar á meðan mótinu stóð.