Opinberir verkkaupar samræma mat á hæfi bjóðenda

Opinberir verkkaupar hafa samræmt kröfur sínar til bjóðenda um tæknilega og fjárhagslega getu þeirra.  Lögð er áhersla á að verktakar séu hæfir til verksins, hafi reynslu og geti vísað til umsagnaraðila, hvort sem það varðar tækni og fagmennsku eða skipulag og stjórnunarþáttinn, ásamt því að standa styrkum fótum fjárhagslega.



Yfirlýsing um mat opinberra verkkaupa á hæfi bjóðenda í útboðum verkframkvæmda var undirrituð í gær af fulltrúum Framkvæmdasýslu ríkisins, umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, Vegagerðarinnar og Samtaka iðnaðarins. Opinberir verkkaupar munu í útboðsgögnum setja fram samræmdar kröfur til bjóðenda um skil upplýsinga með tilboðum til staðfestingar á hæfi þeirra og verða þau gögn lögð til grundvallar hæfismati.



Hæfismat  verður að jafnaði notað í verkum sem eru útboðsskyld samkvæmt lögum um opinber innkaup og þau verk sem falla undir útboðsskyldu samkvæmt innkaupareglum sveitarfélaga. Meta á verkefni með tilliti til áhættu verkkaupa og finna rétt jafnvægi á milli áhættu og samkeppni, eins og segir í yfirlýsingunni. Sem dæmi um verkefni með litla áhættu má nefna hefðbundna efnisflutninga, efnisvinnslu og vetrarþjónustu.  Mikil áhætta er hins vegar í verkefnum þar sem umferð er mikil, brúargerð, gerð jarðganga og í verkefnum með þröng tímamörk.  Í hæfnisflokkun er farið skipulega yfir tæknilega getu bjóðenda, fjárhagsstöðu og persónulegar aðstæður.

 

Ítarefni:

Yfirlýsing: Mat opinberra verkkaupa á hæfi bjóðenda í útboðum á verkframkvæmdum, Reykjavík, 10. desember 2012

Ljósmynd (1,46 Mb)