Note: This news was published over two years ago.
Borgarstjóri verndari jólaskrautssölu til stuðnings Ljósinu
Borgarstjóri hefur fallist á að vera verndari jólaskrautssölu Arca design, en allur ágóði rennur óskiptur til Ljóssins þetta árið.
Jólaskrautið sem um ræðir eru litlir englar sem eru búnir til úr plexigleri og eru tilvaldir sem skreyting á jólapakka eða jólaskraut. Þær Hafdís Heiðarsdóttir og Vilborg Aldís Ragnarsdóttir komu í heimsókn til borgarstjóra í morgun og afhentu honum fyrstu englana.
Arcadesign var stofnað í ágúst 2009 af þeim Hafdísi og Vilborgu en fyrirtækið sérhæfir sig í íslenskri hönnun á vöru úr plexigleri og áli.