Retro Stefsson spilar á Hlemmi laugardaginn 15.desember nk.

Retro Stefsson spilar á Hlemmi laugardaginn 15.desember

 

Tónleikaröðin „Hangið á Hlemmi“

Alla laugardaga til jóla býður Reykjavíkurborg upp á tónleikaröðina "Hangið á Hlemmi". Þeir hefjast óstundvíslega kl. 15:00 og hanga eitthvað fram eftir. Í anda ofgnóttar og fortíðarþráhyggju er frítt á tónleikana og aðeins vinsælar og skemmtilegar hljómsveitir spila.

 

Næsta laugardag mun dansinn dynja á Hlemmi en það er engin önnur en hljómsveitin Retro Stefson sem mun rífa skreytt þakið af Hlemmi. Hljómsveitin er ein vinsælasta sveit landsins og er um þessar mundir tilnefnd til íslensku tónlistaverðlaunanna auk þess sem Retro Stefson hefur verið að gera það gott erlendis  síðustu misseri. Nánar um sveitina á heimasíðu: http://retrostefson.com/

 

Hangið á Hlemmi alla laugardaga til jóla – Ókeypis tónleikar fyrir alla aldurshópa:

15. desember kl 15:00 - Retro Stefson

22. desember kl 15:00 - Jónas Sig og Ómar Guðjóns

 

Hin alræmda strætóstoppistöð Hlemmur er komin í jólabúning og hefur verið skreytt í anda kvikmyndarinnar Christmas Vacation sem þýðir að lögð er áhersla á magn jólaskrauts umfram gæði. Stemning níunda áratugarins svífur yfir vötnum og meðal annars hefur listakonan Hildur Gunnlaugsdóttir sett upp sýninguna „Gluggi fortíðar“ en lýsa má sýningunni sem glugga inn í fortíðina þar sem fótanuddtæki og aðrar lífsnauðsynjar fyrri tíma fá að njóta sín.

Jólahangsið er hluti af gleðiverkefninu Jólaborgin Reykjavík.