Leikskólabörn skreyta strætó með jólateikningum

Það má með sanni segja að það sé að verða jólalegt í strætisvögnum höfuðborgarsvæðisins sem eru komnir í jólabúning. Eins og undanfarin ár eru vagnarnir skreyttir bæði að innan sem utan með jólateikningum frá leikskólabörnum á höfuðborgarsvæðinu. Dregið hefur verið úr hópi þeirra leikskóla sem sendu inn teikningar og mun einn leikskóli í hverju sveitarfélagi fá heimsókn í desember.

Heimsóknirnar byrjuðu í dag og voru það börnin í Krikaskóla í Mosfellsbæ sem fengu fyrstu heimsóknina. Jólasveinn kom akandi á strætisvagni sem búið var að skreyta með teikningum barnanna og bauð þeim í stutta ferð um hverfið með strætó. Í ferðinni voru sungin jólalög og sprellað með jólasveininum. Mikill spenningur var meðal leikskólabarnanna og gleði skein úr hverju andliti.

Þetta árlega verkefni hófst í byrjun nóvember, þegar leikskólar voru hvattir til þess að senda inn jólateikningum frá 4 - 6 ára börnum.  Undirtektir voru mjög góðar og sendu 40 leikskólar inn 1091 teikningar frá ungum og upprennandi listamönnum.

„Við vonum að þetta framtak gleðji farþega Strætó og aðra í umferðinni og hjálpi þeim að komast í jólaskap. Hugmyndaauðgi barnanna á sér engin takmörk og það er alltaf gaman að sjá lífið og jólin frá þeirra sjónarhól.“ segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs.

Valin var af handahófi ein teikning frá hverjum leikskóla og þær settar saman til að prýða vagnana að utan. Jafnframt eru allar teikningarnar aðgengilegar á vefnum www.straeto.is.