Viðey – fjarri skarkala borgarinnar en samt svo nálæg
Viðeyjarkirkja er piparkaka
Það er jólalegt, fallegt og friðsælt í Viðey og þangað er tilvalið að sigla frá kaupæði og skarkala borgarinnar. Í Viðeyjarstofu ríkir rómantísk, gamaldags aðventustemmning og þar er hægt að skreyta sjálfa Viðeyjarkirkju með glassúr.
Gott er að byrja eyjaferð á góðum göngutúr t.d. út í gamla þorpið á austanverðri eyjunni, fjöruferð, rölta út að tjörnunum á Eyðinu, eða skoða magnþrungið verk Richards Serra og Friðarsúluna hennar Yoko Ono. Göngukort fáið þið ókeypis í ferjunni. Eftir hressandi göngutúrinn er gott að setjast niður með eplakinnar eftir útiveruna, fá sér kakóbolla með rjóma og dunda sér við piparkökuskreytingar.
Við bjóðum upp á þrjár tegundir af stórum og fallegum piparkökum til að skreyta, þar á meðal Viðeyjarkirkju.
Ein piparkaka, glassúr og askja 690 kr.
Tvær piparkökur, glassúr og askja 850 kr.
Fimm piparkökur, glassúr og askja 1.390 kr.
Ferja fer frá Skarfabakka laugardaga og sunnudaga kl. 13:15, 14:15 og 15:15 og frá Viðey á klukkutímafresti frá kl. 13:30 - 16:30 . Ferjutollur er kr. 1.000 fyrir fullorðna og kr. 500 fyrir börn (6 - 18 ára), ókeypis fyrir yngri en 6 ára. Menningarkortshafar fá 10% afslátt af ferjutolli og af veitingum í Viðeyjarstofu.