Note: This news was published over two years ago.
Jólamarkaður í Frostaskjóli til að styrkja Rauða krossinn
Sannkölluð jólagleði ríkti í Frostaskjóli 13. desember þegar börn og unglingar stóðu þar fyrir árlegum jólamarkaði til að styrkja Rauða krossinn.
Börnin úr frístundaheimilunum Frostheimum, Selinu, Skýjaborgum og Undralandi, 10 - 12 ára úr Frosta og unglingarnir úr Frosta, höfðu undirbúið markaðinn og var afraksturinn glæsilegur. Krakkar úr Frostheimum sáu um söluna og stóðu sig með mikilli prýði.
Fjölmenni var á jólamarkaðinum og nutu ungir og gamlir þess eiga saman notalega stund með súkkulaði og piparkökum - og leggja um leið góðu málefni lið.