Þriðja helgi aðventu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

Kórfélagar úr Graduale Futuri gleðja gesti og gangandi með söng víða í Jóladalnum á laugardaginn kl. 14-16 og á sunnudeginum verða kátir jólasveinar á ferli um dalinn frá kl. 15-17. 

Í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum geta hugrakkir gestir heimsótt jólaköttinn en reistur hefur verið hryssingslegur kofi handa honum í garðinum sem hann dvelst í flesta daga. Svo virðist sem hann fari á flakk að nóttu og ónáði dýrin og valdi usla. Hægt verður að skella sér í ferðir í Jólahringekjunni frá klukkan 13:00 til 16:00 um helgar og á hestbak á hestum garðsins milli klukkan 14:00 og 14:45. Dýrin fá jólatuggu, jólasíld og hvað sem við á og jólalegt tilboð verður handa mannfólkinu í Kaffihúsi garðsins sem er opið alla daga líkt og garðurinn. Nánari upplýsingar um garðinn á www.mu.is

Verið velkomin í Jóladalinn

www.facebook.com/joladalurinn