ÁSS- OG STÚLKNAMÓTIÐ 2012
Skákmót stúlkna í Breiðholtsskóla var haldið 27. nóvember. Keppt var um „Þorvaldarbikarinn“, bikar sem Þorvaldur Óskarsson fyrrv. skólastjóri gaf til að efla skákáhuga meðal stúlkna í skólanum. Keppnin fer fram einu sinni á ári, um mánaðarmót nóv., des. Keppnin gekk vel og voru stúlkurnar góðir keppendur.
Bikarinn hlaut Snædís Birna Árnadóttir 6. RM, í öðru sæti varð Ásdís Gunnarsdóttir 8. BK. og í því þriðja Guðrún Holm Aðalsteinsdóttir 7. ÁSS.
Hið árlega skákmót um Áss-bikarinn og þar með skákmeistaratitil Breiðholtsskóla fór fram þann 4. des. Í fyrsta sæti varð Ævar Annel Valgarðsson, nemandi í 7. BL. Hann er því skákmeistari Breiðholtsskóla árið 2012 og fær bikarinn til varðveislu í eitt ár auk gullverðlaunapenings til eignar. Í öðru sæti hafnaði Snædís Birna Árnadóttir í 6. RM og í þriðja sæti varð Ólafur Magnús Ólafsson í 6. RS. Mótið fór vel fram og skemmtu allir sér hið besta. Skákdómari var Sigurjóna Björgvinsdóttir. Tekið af síðu www.breidholtsskoli.is.