Jólatónleikar Ungklassíkur í Ráðhúsi Reykjavíkur
Nú er komið að þriðju tónleikum Ungklassíkur í Ráðhúsi Reykjavíkur. Hugmyndin er að gefa nemendum tónlistarskólana tækifæri til að koma fram og gleðja gesti Ráðhússins með klassískum verkum gömlu meistarana.
Þetta verða síðustu tónleikar ársins, en stefnt er að því að halda samstarfi Reykjavíkurborgar og tónlistarskólanna áfram á nýju ári.
Tjarnarsal Ráðhússins hefur verið breytt í jólaskóg, sannkallað ævintýraland, sem er frábær umgjörð fyrir tónleikana.
Ráðhúsið er samkomuhús borgarbúa og það er okkur bæði ljúft og skylt að leggja af mörkum þennan vettvang fyrir tónlistarmenn framtíðarinnar.
Allir tónleikar hefjast klukkan 17.30.