Eigendastefna fyrir Hörpu samþykkt

Borgarstjórn samþykkti í gær eigendastefnu fyrir Hörpu – tónlistar- og ráðstefnuhús.  Helsta markmið eigenda Hörpu, ríkisins og Reykjavíkurborgar er að efla íslenskt tónlistar- og menningarlíf og styrkja stöðu Íslands á sviði ráðstefnuhalds og ferðaþjónustu.

Í eigendastefnunni  kemur m.a. fram að hlutverk Hörpu sé að vera vettvangur fyrir tónlistar- og menningarlíf sem og hvers konar ráðstefnur, fundi og samkomur, innlendar sem erlendar.

Hlutverk hússins er jafnframt að vera miðstöð mannlífs fyrir alla landsmenn í miðborg Reykjavíkur og áfangastaður ferðamanna, innlendra sem erlendra sem vilja kynna sér bygginguna, arkitektúr hennar og listaverk og njóta þjónustu í henni.

Þá kemur fram í eigendastefnunni að Sinfóníuhljómsveit Íslands hafi fast aðsetur í Hörpu fyrir starfsemi sína og greiði sanngjarna leigu fyrir aðstöðuna. Íslenska óperan hefur einnig aðsetur í Hörpu.

Í eigendastefnunni kemur fram að tryggja eigi hagkvæma nýtingu þeirra fjármuna sem lagðir hafa verið í verkefnið á undanförnum árum með skilvirkri og markvissri fjármálastjórnun þannig að reksturinn verði innan þess fjárhagsramma sem starfseminni hefur verið markaður í samningum félagsins.

Eigendastefna Hörpu