Jóns Sig og Ómar Guðjóns hanga á Hlemmi 22. desember nk.
Tveir okkar ástsælustu tónlistarmanna, Jónas Sig og Ómar Guðjóns ætla að hanga á Hlemmi síðasta laugardag fyrir jól. Tónleikarnir eru liður í tónleikaröð Reykjavíkurborgar, Hangið á Hlemmi, þar sem gestum miðborgarinnar, strætófarþegum sem öðrum, gefst kostur á að gera hlé á jólainnkaupum með endurnærandi eyrnakonfekti óstundvíslega kl. 15.00.
Hlemmur iðar af lífi í aðdraganda jólanna og hefur aldrei verið jólalegri. Tónleikarnir hafa verið afar vel sóttir alla laugardaga í desember og er Hlemmur að festa sig í sessi sem kjörinn tónleikastaður í góðum tengslum við mannlífið í borginni.
Hittumst og höngum á Hlemmi laugardaginn 22. desember kl. 15.00