Breyting á Aðalskipulagi vegna Holtsganga og breyting á Hringbraut, deiliskipulag

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkt þann 13. desember 2012, tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024, varðandi niðurfellingu Holtsganga, aukið byggingarmagn á lóð NLSH við Hringbraut og breytta legu stofn- og tengistíga á svæðinu. Tillagan var kynnt í samræmi við 30.-31. gr. skipulagslaga, sbr. gr. 36 um breytingar á aðalskipulagi. Tillagan var kynnt samhliða sambærilegri breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins, tillögu að nýju deiliskipulagi NLSH við Hringbraut og tillögu að breyttu deiliskipulagi Hringbrautar. Tillögurnar voru kynntar á tímabilinu 10. júlí 2012 til 4. september 2012. Frestur til að gera athugasemdir rann út 4. september. Reykjavíkurborg ákvað að framlengja frest til athugasemda vegna aðalskipulagsbreytingar og deiliskipulagsbreytinga til 19. október. Alls bárust 15 athugasemdir við aðalskipulagstillöguna. Athugasemdir gáfu ekki tilefni til breytinga á tillögunni og hefur hún verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar.



Skoða athugasemdir og svör (PDF)



Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti þann 13. desember 2012, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hringbrautar. Í breytingunni felst að felldur er úr gildi hluti deiliskipulagsins umhverfis Hlíðarfót. Svæðið verður innan deiliskipulagsmarka nýs Landspítala. Deiliskipulagstillagan var kynnt í samræmi við 40.- 41. gr. skipulagslaga. Tillagan var kynnt samhliða tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir nýjan Landspítala við Hringbraut, tillögu að breytingum á aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024 og sambærilegum breytingum á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins.



Tillögurnar voru kynntar á tímabilinu 10. júlí 2012 til 4. september 2012. Frestur til að gera athugasemdir rann út  4. september.  Reykjavíkurborg ákvað að framlengja frest til athugasemda vegna aðalskipulagsbreytingar og deiliskipulagsbreytinga til 19. október.  Alls bárust 5 athugasemdir við deiliskipulagstillöguna, þar af 3 samhljóða. Ekki voru gerðar breytingar á tillögunni og hefur hún verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til umhverfis- og skipulagssviðs, embætti skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar.                

Skoða umsögn (PDF)