Kjarval – Mynd af heild, Kjarvalsstöðum, 21. desember 2012 – 20. maí 2013

Á annað hundrað verk eftir Jóhannes S. Kjarval í eigu Listasafns Reykjavíkur verða dregin fram í dagsljósið á sýningunni Mynd af heild á Kjarvalsstöðum frá og með 21. desember 2012. Sýningin er í anda salon-sýninga, þar sem verkin þekja alla veggi Kjarvalssalarins, frá gólfi og upp í loft án nokkurrar reglu.

Á sýningunni er lögð áhersla á óvænt samhengi verkanna, en þema, tímaskeið, viðfangsefni og tímaröð eru látin lönd og leið. Áhorfandinn nálgast verk Kjarvals án fyrirmæla og skyggnist inn í hugarheim hans á eigin forsendum.

Listasafn Reykjavíkur hefur leitast við að setja safneign Kjarvals fram á ólíkan máta, með þematengdum sýningum, yfirlitssýningum og samsýningum. Kjarvalssafneignin samanstendur af  5.392 verkum eftir listamanninn; 5.159 teikningum, 188 málverkum auk annarra tegunda verka.