Lifandi jól í ferðaþjónustu

Jólin eru komin. Hjá Höfuðborgarstofu hófst jólaundirbúningurinn síðsumars en Reykjavík - Jólaborgin okkar fór á gott flug þetta árið með viðburðaríkum jólavef  þar sem hægt er að kynna sér það helsta sem er um að vera í borginni okkar.

Aðventa, jól og áramót

Reykjavík og höfuðborgarsvæðið er spennandi áfangastaður á aðventunni í anda Íslands allt árið, en ljóst er að íslensk jól og áramót njóta vaxandi vinsælda  meðal ferðamanna. Það er því mikilvægt að ferðaþjónar hugi að þörfum ferðamanna.

Listinn um afgreiðslutíma yfir jól og áramót er mikilvægur öllum sem vilja vita hvað um er að vera yfir hátíðarnar.

Úrval dagsferða á jóladag

Sundlaugarnar í Reykjavík og nágrenni  hafa rúman opnunartíma yfir hátíðirnar, einnig fjölmörg söfn, Fjölskyldu og húsdýragarðurinn, Bláa lónið og fleiri. Þó víðast sé lokað á jóladag eru skipulagðar dagsferðir í boði þann 25. desember og geta ferðamenn því valið úr töluverðu ferðavali. s.s. á Gullfoss og Geysir, í Bláa lónið, Norðurljósaferðir og fleiri. Einnig getur fólk valið á milli  útreiða- og jeppaferða.