Margs ber að gæta við áramót
Svifryk (PM10) fór átta sinnum yfir sólarhringheilsuverndarmörk árið 2012. Núna er búist við hægum vindi og þurrviðri í Reykjavík á áramótum og því eru líkur á töluverðri svifryksmengun á nýársnótt, að sögn Önnu Rósu Böðvarsdóttur heilbrigðisfulltrúa hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. Styrkur svifryks í Reykjavík var 61 míkrógrömm á rúmmetra á nýársnótt 2012. Styrkurinn var undir mörkum árið 2011 en 225 míkrógrömm á rúmmetra árið 2010. Heilsuverndarmörkin á sólarhring eru 50.
Hávaði
Hávaði vegna flugelda verður oft feikilega mikill. Foreldrar ættu að gæta að börnum sínum því þau eru viðkvæmari en fullorðnir fyrir hávaða og gæludýraeigendur að dýrum sínum. Sum dýr geta orðið skelfingu lostin þegar flugeldakökur eru sprengdar í húsagötum borgarinnar. Æskilegra er að safnast saman fjarri húsum og sprengja á opnum svæðum. Fólk sem er viðkvæmt fyrir svifryki og hávaða ætti að vera inni þegar mest gengur á um miðnætti og loka gluggum.
Flugeldar
Heildarinnflutningur á nýjum flugeldum er að þessu sinni 586 tonn samkvæmt upplýsingum frá Ólafi G. Emilssyni aðstoðaryfirlögregluþjóni hjá Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu. Árið 2011 voru 575 tonn flutt til landsins og árið 2010 voru þau 510. Einnig er leyfilegt að selja afganga af flugeldum sem fluttir voru inn 2010 og 2011.
Brennur
Söfnun í þær tíu áramótabrennur sem verða í Reykjavík hófs 27. desember og kemur efnið meðal annars frá fyrirtækjum en einungis hreint timbur er notað í brennurnar. „Vörubretti eru algengasta efnið í brennur,“ segir Guðjón Ingi Eggertsson hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur sem hefur eftirlit með brennunum ásamt Lögreglunni og Slökkviliðinu á Höfðuborgarsvæðinu og Veðurstofunni.
Flugeldarusl
Flugeldarusl er eitt af þeim verkefnum sem skapast við áramótin. Púður er 10% af heildarþyngd flugelda, restin sé aðallega pappi. Þeim pappa sem verður eftir á túnum og götum þarf fólk að skila sjálft á endurvinnslustöðvar Sorpu ásamt öðrum skotleifum. Flugelda má alls ekki setja í tunnur við heimili fólks.
Tenglar:
Svifrykmælir á www.reykjavik.is