Snjóhreinsun gengur vel

Vel hefur gengið að ryðja snjó af gönguleiðum og akbrautum, auk þess sem saltað og sandað hefur verið eftir þörfum.  Í dag er verið að ryðja snjó í húsagötum og eins verður eftir því sem svigrúm gefst unnið við stofnanalóðir.

Á morgun, gamlársdag, verða hverfastöðvar opnar frá klukkan 8 - 12 og þangað geta íbúar sótt sér sand og salt til eigin nota. Hverfastöðvarnar eru við Njarðargötu, Flókagötu, Stórhöfða og Jafnasel.

Unnið hefur verið rösklega við snjóruðninginn og því kemur fyrir að ruðningar fari yfir niðurföll. Fylgst verður með því þegar fer að þiðna og eru ábendingar vel þegnar. Á vef Reykjavíkurborgar er auðvelt að skrá inn ábendingar varðandi snjóruðning og allt það sem lítur að daglegum rekstri borgarlandsins > http://reykjavik.is/thjonusta/vidhald-borgarlands.  Einnig er í síma 4 11 11 11 tekið á móti ábendingum og utan hefðbundins þjónustutíma er hægt að velja þá bakvakt sem við á hverju sinni.