Hverfisráð Miðborgar
Ár 2011, fimmtudaginn 7. apríl var haldinn 76. fundur Hverfisráðs Miðborgar. Fundurinn var haldinn í Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða og hófst kl. 17.00. Viðstödd voru Óttarr Ólafur Proppé formaður, Áslaug María Friðriksdóttir, Daði Ingólfsson og Kristín Soffía Jónsdóttir. Vésteinn Valgarðsson sat fundinn sem áheyrnarfulltrúi VG. Jafnframt sátu fundinn Magnús Skúlason formaður Íbúasamtaka Miðborgar og Sigtryggur Jónsson, framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða, sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
1. Rætt um hverfispott hverfisins frá Framkvæmda- og eignasviði vegna framkvæmda á árinu 2011. Fram kom mikil ánægja með að fá að taka þátt í ákvörðunum um framkvæmdir í hverfinu, en jafnframt kom sú skoðun mjög ákveðið fram að hverfisráðin ættu í framtíðinni að fá að koma fyrr að gerð fjárhagsáætlunar. Verði um ákveðna hverfispotta að ræða á komandi árum þurfi einnig að taka tillit til ástands hverfa við skiptingu þeirra milli hverfa. Þá kom fram í máli fulltrúa að það sé ekki fullnægjandi að hverfisráð fái eingöngu að fjalla um verkefni sem falla undir stofnframkvæmdir. Nauðsynlegt sé einnig að hverfisráðin geti ráðstafað fé til viðhalds- og endurnýjunarframkvæmda. Hverfisráðin ættu einnig að hafa handbært fé til framkvæmda innan hverfa, sem hægt væri að nota til þess að styðja við viðleitni íbúa eða hópa íbúa til að taka ákveðin svæði í fóstur. Nefnd vou Bjarnarstígsrólo og Frakkastígur 23, sem dæmi um svæði sem íbúar gætu tekið í fóstur ef fé fengist til ýmissa smáframkvæmda og viðhalds. Þeirri hugmynd er beint til Framkvæmda- og eignasviðs og Umhverfis- og samgöngusviðs að leitað verði til Listaháskólans og annarra með hönnun götugagna, leiktækja ofl.
Eftirfarandi ákvarðanir voru teknar um ráðstöfun hverfispotts ársins 2011:
Hljómskálagarður: 2 nestisborð og ný leiktæki = 5.000.000 kr.
Frakkastígur: 2 nestisborð og ruslastampur = 1.000.000 kr.
Austurbæjarskóli: 4 nestisborð, 2 ruslastampar og ný leiktæki = 7.000.000 kr. Staðsetning og útfærsla verði unnin í samráði við skólastjóra og foreldrafélag Austurbæjarskóla.
2. Formaður Íbúasamtaka Miðborgar kynnti þrjú erindi sem samtökin höfðu nýlega sent frá sér. Í fyrsta lagi erindi til umhverfis- og samgönguráðs um endurskoðun á snjóhreinsun í borginni. Í öðru lagi erindi til skipulags- og byggingaráðs og byggingarfulltrúa Reykjavíkur um beitingu dagsekta vegna óreiðuhúsa og í þriðja lagi erindi til skipulags- og byggingaráðs um breytingar á sorphirðu í borginni.
Hverfisráð tekur undir fyrri tvö erindi íbúasamtakanna og samþykkir að beina því til Framkvæmda- og eignasviðs og Umhverfis- og samgöngusviðs að endurskoða snjóruðningsáætlun með tilliti til þess að bæta þjónustu við gangandi og hjólandi vegfarendur. Sérstaklega á þetta við í þeim hverfum þar sem hlutdeild þess ferðamáta er mikil. Í Miðborginni nýta margir sér vistvænan ferðamáta umfram einkabílinn og því er óásættanlegt að stór hluti göngustíga þar sé ekki ruddur fyrr en eftir 36 klst. Jafnframt samþykkir Hverfisráð Miðborgar að krefjast þess að skipulags- og byggingaráð og byggingarfulltrúi nýti sér tafarlaust heimildir til beitingu dagsekta sbr. 61. gr. byggingarreglugerðar.
Varðandi erindi íbúasamtakanna um breytingar á sorphirðu samþykkir ráðið að taka málið aftur á dagskrá þegar breytingar á sorphirðu í Reykjavík verða komnar til framkvæmda og ljóst verður hvernig farið verður með óskir íbúa um undanþágur.
Fundi slitið kl. 18.35
Óttarr Ólafur Proppé,
Kristín Soffía Jónsdóttir, Áslaug María Friðriksdóttir,
Daði Ingólfsson,