Hverfisráð Hlíða
Hverfisráð Háaleitis
Ár 2004, miðvikudaginn 24. nóvember, var haldinn 24. fundur Hverfisráðs Háaleitis. Fundurinn var haldinn í Tónabæ og hófst kl. 14:10. Fundurinn var haldinn í samstarfi við Hverfisráð Hlíða. Viðstaddir voru Anna Kristinsdóttir, formaður, Guðmundur Magnússon og Rúna Malmquist. Frá Hverfisráði Hlíða Sigrún Elsa Smáradóttir og Garðar Mýrdal. Frá Tónabæ Ásdís Ásbjörnsdóttir forstöðumaður, Árni Jónsson deildarstjóri unglingasviðs, Kolbrún Pálsdóttir deildarstjóri barnasviðs og Sigríður Jóhannsdóttir deildarstjóri rekstrarsviðs. Jafnframt sátu fundinn frá þróunar- og fjölskyldusviði Ólafía Dögg Ásgeirsdóttir sem ritaði fundargerð og Sigurlaug Þorsteinsdóttir nemi í starfsnámi.
Þetta gerðist:
1. Kynning á starfsemi ÍTR í hverfum Háaleitis, Hlíða og Laugardals.
Ásdís Ásbjörnsdóttir kynnti starfsemi Tónabæjar í hverfum Háaleitis, Hlíða og Laugardals, Kolbrún Pálsdóttir kynnti starfsemi frístundaheimilanna í hverfunum og Árni Jónsson kynni starfsemi félagsmiðstöðvanna í hverfunum.
2. Umræður undir lið 1.
Fundi slitið kl. 15:40
Anna Kristinsdóttir
Guðmundur Magnússon Rúna Malmquist